Notendaskilmálar


EFTIRFARANDI SKILMÁLAR GILDA UM HEIMSÓKN ÞÍNA Á VEFSÍÐUNA OG ÖLL VIÐSKIPTI SEM ÞÚ KANNT AÐ GERA UM VEFSÍÐUNA, NÚ EÐA SÍÐAR.

Almennt
Matarmenn áskilja sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar samkvæmt verkferlum Matarmenn ehf. Eftir að varan er pöntuð er hægt að nálgast hana í beinu framhaldi hjá Matarmenn ehf. Trönudal 13, Reykjanesbæ(Frítt) Opið mánudaga og fimmtudaga 16-18. Sé óskað eftir að varan sé send heim innan höfuðborgarsvæðis er hún send á næstu 1-2 virku dögum (Kostnaður 1000kr). Sé óskað eftir því að varan sé send út fyrir höfuðborgarsvæðið er hún send á næstu 1-2 virku dögum (kostnaður: 1000kr) Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Matarmenn ehf. og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Matarmenn ehf. um afhendingu vörunnar. Matarmenn bera samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Matarmenn ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Matarmenn með spurningar.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Matarmenn ehf. á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.